Klói litli

Be afraid be very afraid!

Blogg

22.12.2008

Gleðileg jól

Gleðileg jól allir saman!
Í ár sendi ég engin jólakort en styrkti þess í stað heyrnarlausa, lamaða, Mæðrastyrksnefnd og Fjölskylduhjálpina.

Jólakveðja,
Sóley

 

Skrifað 22.12.2008 kl. 20:27 af

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

18.12.2008

Meinbugir voru það heillin

Út er komin jólabókin í ár "Meinbugir á íslenskum lögum með sérstakri áherslu á undirbúning lagasetningar".
Árituð eintök verða brátt fáanlega. Engin ástæða til að brjóta rúður til að fá eiginhandaráritun. Egg verða gerð upptæk við innganginn.

Skrifað 18.12.2008 kl. 20:55 af

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

3.12.2008

Allt á uppleið!

Hæ ég er hvorki dauð né atvinnulaus. Bara svo það sé á hreinu. Gísli frændi þorði nú samt ekki annað en að tékka um daginn. Skil vel að hann hafi saknað mín.
Annars er bara allt á uppleið. Ég er orðin fastráðinn ríkisstarfsmaður sem fær leyfi úr vinnu annað slagið til að skrifa meistaraverkið "Meinbugir á íslenskum lögum" sem ég hef fulla trú á að tryggi mér sömu virðingu og Denny Crain. Sóley, Sóley Crain! Sem þýðir náttúrulega að ég verð að fara að ná kúbönsku minivindlunum úr gíslingu hjá Ingu frænku. Henni fannst víst tilvalið að senda þá í hressingarvist í Holtsmúla.
Núna býð ég spennt eftir því að krónan verði sett á flot en hún hefur  verið á sundnámskeiði hjá Seðló undanfarið. Skilst samt að þeir þori ekki annað en að láta hana hafa kút.

Skrifað 3.12.2008 kl. 17:46 af

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 4
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 15
Gestir í gær: 5
Samtals flettingar: 86930
Samtals gestir: 38525
Tölur uppfærðar: 17.3.2010 06:00:48

Vafraðu um

Hvaða orð finnst þér fallegast?

 Rassasafapressa

 Loðbolli

 Þrífótur

 Risaeðlusæði

 Kraftbendill

 Fíns (dregið af orðinu fínt)


Sýna niðurstöður

Um mig

Nafn:

Sóley Sigmarsdóttir

Afmælisdagur:

25. júní 1977

Heimilisfang:

Lindabær 551 Sauðárkrókur

Tenglar