|
Klói litli Be afraid be very afraid! |
|
Blogg27.7.2008Ástandið afþakkaðÁkvað að vera í bænum um helgina þar sem Stína bauð í innflutningspartý. Nú skyldi djammað. Það var því rökrétt framhald að sletta á sig brúnkukremi, fara í Kringluna með Elfu og kaupa djammkjól kvöldsins. With mission accomplished var haldið heim á leið og stefnan tekin á diskóblund til að auka úthald kvöldsins. Náði reyndar aldrei fyrirhuguðu stefnumóti við Óla lokbrá. Partýið hjá Stínu var tær skemmtun og síðan héldu fimm fullar konur í bæinn í fylgd með einum karlmanni (jamm hugrakkur maður það). Byrjuðum kvöldið á The English Pub. Fljótlega fór að draga til tíðinda, karlmaður nálgaðist, ég var komin á séns. Allt í einu var ég komin í félagsskap myndarlegs bresks hermanns. Við erum að tala um flott andlit, sixpack og alles. Ég og hermaðurinn ákváðum að kíkja á annan stað til að kanna stemminguna. "Eruð þið með skilríki? heyrðist í dyraverðinum. Nú hýrnaði yfir minni og ég reif upp gamla bleika ökuskírteinið mitt um leið og ég flissaði á ensku "ég er 31 árs." Hermaðurinn sendi mér skrítið augnaráð. "Fyrirgefðu væni, hvað ert þú gamall?" mælti ég á enska tungu. Hann svaraði " 24. ára". Oh my god, ég var komin með toyboy. Mér leið eins og laxveiðimanni sem er búinn að setja í 25 punda lax. Ég ákvað þó síðar um nóttina að gera eins og ákveðnir laxveiðimenn sem heiðra það að "Veiða og sleppa", skýrði honum frá þeirri staðreynd að ég og kærastinn værum nýlega hætt saman og ég byggi enn í íbúðinni hans. Ég væri því ekki að fara að sofa hjá honum. Hann sagðist skilja þessa erfiðu stöðu en bætti svo við "I got a boat" Ég þakkaði gott boð og tilkynnti honum að hann væri búinn að bjarga deginum nú þegar og hann skyldi nú bara drífa sig að finna aðra íslenska stelpu til að sofa hjá. Ég brosti alla leiðina heim með nýpússað egó. Það verður að bíða betri tíma að ég fari í "ástandið". GOD BLESS THE QUEEN! 23.7.2008Bridget versus kálfurinn SóleyÁður en lengra er haldið er eins gott að þið gerið ykkur grein fyrir því að þið erum að lesa blogg 31 árs gamallar einhleyprar konu. Þvottadrengurinn ákvað að nota öll bónusstigin sín á einu bretti síðasta föstudagskvöld og skilaði konunni. Þið vitið hvað það þýðir, Bridget is BACK! Nú stend ég frammi fyrir því að ákveða hvað gera skal um helgina. Valið stendur á milli þess að fara í Skagafjörðinn og heimsækja nöfnu mína kálfinn Sóley (sem er tilvonandi stjarna í kálfateymingarkeppninni á landbúnaðarsýningunni í reiðhöllinni Svaðastöðum, ásamt fríðu föruneyti) og hins vegar að skella sér á Grundarfjarðardaga íklædd kjúklingabúningi og djamma út í eitt. Jamm enginn millivegur á þessum bæ. 6.7.2008Óvissunni er lokið, ja eða þannigSælt veri fólkið. Þeir sem muna svo langt aftur rámar kannski í það að ég átti afmæli fyrir 11 dögum. Þakka öll símtöl og kveðjur sem bárust. Þvottadrengurinn ákvað í tilefni af afmælinu að bjóða mér í óvissuferð um síðustu helgi. Snilldar ferð. Við tókum "túristarútu" og fyrsta stopp var Þingvellir. Eftir að hafa barist á móti rokinu að þjónustumiðstöðinni bauð hann upp á kaffi og pönnsu, mjög þjóðlegt. Næsta stopp var Geysir, þar reyndi þvottadrengurinn að gabba "Hildigunni" og lét mig taka bakpokann minn úr rútunni. Allir töluðu ensku við okkur nema bílstjórinn og manni var farið að líða eins og í útlöndum. Við ákváðum því að fá okkur bjór í hádeginu á Hótel Geysi. Þar náði þvottadrengurinn að telja mér trú um að við færum ekki lengra, en þegar ég átti smá lögg eftir af bjórnum rak hann mig aftur upp í rútu. (ég sem var byrjuð að "bonda" við hótelið) Næsta stopp var að sjálfsögðu Gullfoss og ekki minnkaði vindurinn. Ég gleymdi víst að taka það fram að ég var í léttu pilsi og frekar þunnum leggings (klæðaburður samþykktur um morguninn af þvottadrengnum). Á þessum tímapunkti var alls óvíst hvað ég næði að flassa marga ferðamenn áður en við yfirgæfum svæðið. Ég er ekki viss um endanlega tölu en er nokkuð viss um að 1 þýsk kona hefur allavega óljósa hugmynd um það hvernig nærbuxurnar mínar voru á litinn þann daginn. Við yfirgáfum svo rútuna á Laugarvatni þar sem við gistum á Hótel Eddu, fórum út að borða á Lindinni og í sund daginn eftir. Eins og áður sagði snilldar ferð og þvottadrengurinn vann sér inn ótilgreindan fjölda svokallaðra bónusstiga sem verða ekki útskýrð nánar. Flettingar í dag: 2 Gestir í dag: 2 Flettingar í gær: 12 Gestir í gær: 6 Samtals flettingar: 86981 Samtals gestir: 38542 Tölur uppfærðar: 21.3.2010 02:19:55 |
Vafraðu umEldra efni Um mig Nafn: Sóley SigmarsdóttirTölvupóstfang: soleys@bifrost.isAfmælisdagur: 25. júní 1977Heimilisfang: Lindabær 551 SauðárkrókurTenglar |