Klói litli

Be afraid be very afraid!

Blogg

21.6.2008

Skagafjörður

Fyrir tveimur vikum yfirgaf ég þvottadrenginn og hélt í helgarferð norður í Skagafjörð til að rifja upp sveitastemminguna. Eitthvað hefur hún nú breyst síðan "Amma" var ung. Á hlaðinu var mér mætt með látum. Á ferðinni var nýjasta útgáfa af fuglahræðu. Þessi var rafknúin og gaf frá sér hljóð sem líktust helst því þegar þjófavarnarkerfi í bíl lætur ljós sitt skína. Hér gefur að líta myndband með herlegheitunum
http://www.clarratts.com/images/scare.mpeg Annars skilst mér í ljósi síðustu atburða að hlutverki hennar hafi verið breytt í ísbjarnarfælu þar sem ísbirnir séu í raun bölvaðar gungur.
Önnur nýjung sem ég tók eftir var að bændur virðast hafa tekið upp siði háskólanema og eru farnir að fara í svokallaðar "Vísindaferðir". Ég gat því ekki notið samvista við Sólheimafjölskylduna á sunnudaginum þar sem búið var að skilja börnin eftir í pössun og foreldrarnir farnir í bjórverksmiðuna sem framleiðir Kalda. Mér skilst að það hafi þó runnið af þeim á endanum og búið sé að setja út kýrnar og sláttur hafinn.

Skrifað 21.6.2008 kl. 11:56 af

Bein slóð á færslu

13 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

5.6.2008

Ísbjarnarblús nr. 2

Á heiðinni hefur hann verið síðan í gær
fáeinir hestar, illa lyktandi ær
tugir manna á Toyotum þokast nær

Ég ætla aldrei, aldrei, aldrei aftur að skreppa í Skagafjörð
ætla með kíló af Kjörís út í náttúruna of fíla mig þar sem grasið ei grær

Þessi færsla er styrkt af Ben&Jerry's

Baked Alaska

Innihald: Vanilla Ice Cream with Marsmellow Swirls&White Chocolate Polar Bears.

Skrifað 5.6.2008 kl. 19:29 af

Bein slóð á færslu

9 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

3.6.2008

Velkominn í Skagafjörð

Eitthvað finnst mér gestrisni Skagfirðinga hafa farið aftur. Það var allavega ekki vel tekið á móti bangsa litla í dag þegar hann kom að öllum líkindum röltandi úr Húnavatnssýslunni yfir í Skagafjörð. Hann hefur líklega farið fram hjá skiltinu á mörkum Húnavatnssýslu og Skagafjarðar þar sem segir "Velkominn í Skagafjörð", en skiltið prýðir mynd af hesti. Bangsi hefur því dregið þá ályktun að hér yrði vel tekið á móti honum og jafnvel boðið upp á hrossakjöt. Mér finnst að það eigi að draga sveitarfélagið Skagafjörð til ábyrgðar fyrir villandi upplýsingar, eða er kannski smátt letur á skiltinu sem segir " gildir ekki um þá sem eru hvítir, loðnir,þybbnir og eiga það til að ógna fullorðnum karlmönnum". Ég þori allavega ekki öðru en að sletta á mig brúnkukremi og raka fótleggina extra vel áður en ég skrepp í Skagafjörðinn um helgina. Allur er varinn góður!
Ég er svo sem ekki hissa að lögreglan hafi ekki tekið sénsinn á því að bangsi gæddi sér á einhverjum lögreglumanninum, þar sem erfiðlega hefur gengið að manna lögregluna á Sauðárkróki undanfarið. Ég held þó að aðrar og dýpri ástæður hafi legið að baki drápinu á bangsa litla. Skagfirðingum hefur nefnilega alltaf verið illa við Húnvetninga.

Skrifað 3.6.2008 kl. 17:16 af

Bein slóð á færslu

6 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 15
Gestir í dag: 7
Flettingar í gær: 12
Gestir í gær: 6
Samtals flettingar: 86994
Samtals gestir: 38547
Tölur uppfærðar: 21.3.2010 23:23:37

Vafraðu um

Hvaða orð finnst þér fallegast?

 Rassasafapressa

 Loðbolli

 Þrífótur

 Risaeðlusæði

 Kraftbendill

 Fíns (dregið af orðinu fínt)


Sýna niðurstöður

Um mig

Nafn:

Sóley Sigmarsdóttir

Afmælisdagur:

25. júní 1977

Heimilisfang:

Lindabær 551 Sauðárkrókur

Tenglar