|
Klói litli Be afraid be very afraid! |
|
Blogg18.5.2008Bensín eða BarcelonaÞað hefur verið á stefnuskránni hjá mér að kaupa bíl fljótlega, en eftir að þvottastrákurinn benti á að það er hægt að fara ansi oft til útlanda á ári fyrir þann pening sem fer í að reka bíl þá ákvað ég að hugsa málið. Eftir að hafa farið inn á vefsíðu FÍB og séð hvað kostar að reka eitt stykki brumma á ári þá var bílakaupum frestað um óákveðinn tíma og í staðinn sendi ég þjónustufulltrúanum í bankanum tölvupóst og bað hana að lækka yfirdráttarheimildina mína. Þetta er merkur áfangi þar sem umrædd heimild hefur ekki gert neitt annað en að hækka á námsárunum. Ég fagnaði síðan þessu merka skrefi með því að panta flug og hótel í 4 nætur í Barcelona 12. - 16. október fyrir mig og þvottastrákinn. Held að ég hafi náð helvíti góðum díl með hjálp internetsins. Heildarpakkinn á 117 þúsund kr. á núverandi gengi fyrir okkur bæði og hótelið virðist ekki vera neitt slor, heldur 4 stjörnu hótel á góðum stað með heitum potti á þakinu. Ef þið sjáið mig í strætó dreymna á svip, þá er það af því að ég er að hugsa um nuddið sem ég ætla að fá mér í spa-inu á hótelinu. 13.5.2008Viagra og ParísÞrátt fyrir verðbólgu, fársjúka krónu, slímhúðarbólgu í auga og væga geðveiki þá skelltum við Stórholtsbúarnir okkur til Parísar á árshátíð FME um helgina. Ferðin reyndist alveg dásamleg í alla staði. Ég hélt mig verslunarlega á mottunni og Arnar var svo hamingjusamur að París er nýja uppáhalds borgin hans. Þessari elsku finnst ég stundum vera svoldið "tens". Ég náði hins vegar að slaka svo vel á í París að hann trúði ekki sínum eigin augum og sakaði mig sífellt um ölvun (eins og ég þoli ekki nokkur hvítvínsglös hehe). Hann lætur sig nú dreyma um að ég eldi franska lauksúpu og baki crepes allar helgar hehe. Þannig að nú er bara að safna fyrir næstu Parísarferð, drekka hvítvínið og kampavínið úr tollinum og chilla. Annar virðast fleiri en ég vera orðnir meðvitaðir um verðbólgu og hátt gengi. Ég játa þó að ég skellti upp úr í síðustu viku þegar ellilíferisþegi var að kvarta yfir hækkun á Viagra í Velvakanda. Helvíti hart þegar svona nauðsynjavörur hækka upp úr öllu valdi. Flettingar í dag: 7 Gestir í dag: 3 Flettingar í gær: 11 Gestir í gær: 4 Samtals flettingar: 86974 Samtals gestir: 38537 Tölur uppfærðar: 20.3.2010 14:24:23 |
Vafraðu umEldra efni Um mig Nafn: Sóley SigmarsdóttirTölvupóstfang: soleys@bifrost.isAfmælisdagur: 25. júní 1977Heimilisfang: Lindabær 551 SauðárkrókurTenglar |